7.7.2008 | 11:07
Litla frænkan mín!
...þetta er bara alveg að verða reglulegt hjá mér!!
Ég er búin að eignast litla frænku!
Hún er svo rosalega mikið krútt...mig hlakkar svo mikið til að hitta hana og fá að knúsa hana! Mér finnst svo merkilegt hvernig maður getur bara elskað einhvern svona mikið...manneskju sem maður hefur aldrei hitt en veit að maður elskar svona mikið!!
Fór til Hólmavíkur á Hamingjudaga um daginn...það var mjög huggulegt og ég skemmti mér mjög vel þrátt fyrir "æðislegt" veður!
Átti geðveikt huggulegann dag í gær með stelpunum...horfðum á 3 myndir, pöntuðum pizzu og fengum okkur ís...Sara gerði geðveikt góða marssúkkulaði sósu á ísinn..mjög yndislegt!
Ég átti víst alveg uppsafnaðann pakka af fuðrulegum sögum að segja stelpunum í gær...ég hélt ég hefði verið löngu búin að segja þeim frá þessu en svo virtist ekki vera...kannski hef ég ekki sagt neinum frá þessum furðusögum...er að spá í að leyfa þeim að fljóta hérna með... 
Saga 1:
Ég er sem sagt að vinna í Perlunni og er með nafnspjaldið mitt í ógeðslega ljótum ferskjubleikrauðum bol. Um 60 ára gamall maður kemur með konuna sína og dætur sem eru allar þrjár vel eldri en ég. Hann er fyrstur að fá sér súpu og salat og kemur að kassanum og bíður eftir föruneytinu sínu.
Hann horfir á mig og segir svo: "Heitirðu Árný?"
Ég: "...já."
Svo þegir hann í smá stund og segir svo: "Fyrsta kærastan mín hét Árný."
Hann segir mér svo frá þessu sambandi...að það séu 40 ár síðan og hann var á Reykjaskóla, þau voru rosalega ástfangin en það hafi nú ekki gengið upp...
Síðan fá konan og stelpurnar sér sæti...hann borgar mér og þegar hann er að fara tekur hann sig til, kýlir kumpánlega í öxlina á mér og segir: "Þú kannt nú að koma manni til!!!" 
Saga 2:
Ég er að fara heim til Hörpu á Njálsgötuna (sem er niðrí bæ). Við skulum ekki gleyma því að það er oft furðulegasta fólk sem maður mætir nirí bæ...þá er ég ekki að tala um sjálfa mig! 
Ég legg semsagt bílnum og stekk út. Rölti svo í áttina að húsinu hennar Hörpu og sé að ég er að fara að mæta manni sem ég taldi ekki vera með fullu viti. Hann labbar á góðum hraða á móti mér með tvo fulla haldapoka af öryggishjálmum...!!! Svo stoppar hann þegar hann er nánast beint fyrir framan mig horfir hann á mig og segir mjög hátt og með svona furðulegri röddu: "ERT ÞÚ AMMA?!"
Ég strunsaði áfram og sagði lágum rómi: "uuu...nei!" 
Saga 3:
Ég er í bónus og er klædd í svarta flíspeysu. Ætla að ganga rakleitt að brauðahillunni en það kemur svona 70 ára gamall maður og stoppar mig!
Hann spyr hátt og snjallt: "ert þú að vinna hérna?"
Ég svara: "uuu...nei ég er ekki að vinna hérna!"
Þá verður hann aldeilis hissa og öskrar yfir sig: "ERTU EKKI AÐ VINNA?!?!"
Ég snáfaði mér skammarlega í burtu og sagði ofurlágt: "uuu...jú, bara ekki hérna..." 
Já...svona er þetta...
Hafiði það fínt...ætla að hætta núna...
Later!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
29.5.2008 | 14:51
...og það var blogg!!! ;)
OMG...hvað er að gerast? ...ég er vöknuð upp frá dvalanum...hvort ég vaki lengi verður svo að koma í ljós!
Ég er byrjuð í nýrri vinnu...sem er alveg splendid!!
Farin að vinna í Steypuskálanum í Álverinu í Straumsvík...það er alveg snilld ef ég á að segja eins og er!! Vinna í 5 daga og frí í 5 daga...það er planið út allt sumarið (að minnsta kosti)...gengur alveg vel og allt mjög huggulegt!
Er búin að vera seinustu daga á frumnámskeiði í vinnunni (lyftaranámskeiði) og gaman...! 
Jón Örn er floginn úr hreiðrinu og auðvitað gat ég ekki setið á mér að breyta öllu saman heima hjá mér...breytti herberginu mínu í alvöru stofu og herberginu hans í herbergi..!
...ég og Agnes drösluðum hillunni sem var inni hjá johnny inn í stofu...og vá hvað það var átakanlegt, við svitnuðum eins og karlmenn!!
Veit ekki hvort ég geri einhverjar meiri dramatískar breytingar þegar Agnes hefur yfirgefið mig...ætli ég þurfi ekki bara að fara að ættleiða börn til að fylla upp í herbergin!! Jahh...það er kannski málið að fá son minn sem býr á Indlandi til að flytja inn...það væri nú ekki amarlegt fyrir strákinn... 
Ég horfði nú á úrslit eurovision um daginn...vá hvað ég var ekki sátt!! Getur EINHVER sungið lagið sem vann fyrir mig?? EINHVER?? ...hélt ekki!
Skemmtum okkur samt vel yfir þessu! Þegar ég og Agnes löbbuðum svo heim hittum við þrjá norsara...ég sagði þeim að Norska lagið hefði verið best...þegar þeir trúðu mér flýtti ég mér að brjóta þá niður og segja NEI!!
...þeim fannst ég fyndin...eða eitthvað álíka! 
Hef verið að rannsaka Ben & Jerry's ísa upp á síðkastið...og er jafnvel að fara að leggja í vana minn að háka svoleiðis í mig!!
...þrátt fyrir óhollustuna sem býr í því...en maður má borða ís ef maður á ekki kærasta!!
Hehe...
Fór í sauðburð þarsíðust helgi minnir mig...og þá fékk ég að taka á því! Tók alveg sjálf á móti fullt af lömbum...mjög gaman!
Eftir sauðburðinn er ég orðin miklu ríkari en mér datt í hug að ég yrði...núna á ég alveg 4 kindur og 10 lömb...!! Eitt lambið, sam var alveg oggulítið (alveg eins og kettlingur eins og einhver sagði) fékk ég samt gefins. Afi minn átti það en sagði mér að eiga það þar sem það væri að drepast...en ég hjúkraði því og það er eldhresst í dag!!
Ég skal sko sýna honum afa mínum flottustu gimbrina sem kemur af fjöllum í haust...!
Ég og Agnes skruppum í smá Roadtripp til Þingvalla í seinasta mánuði...hér eru nokkrar myndir! 
Öss...ég fór á vídjóleigu í fyrradag...og langaði svo rosalega til að leigja mér VHSmyndir...JÁ VHS MYNDIR!!!...!! Ég spurði dömuna hvort hún vissi hver ég gæti fengið þær...og ég hef aldrei séð neinn horfa með jafn mikilli fyrirlitningu á mig á ævi minni...aldrei!
...ég vil bara vita hvað þau hafa gert við allar VHS myndirnar sem voru til þarna...ég mundi alveg þiggja nokkrar sko...ég á nefnilega bara VHS tækið sem ég kaupti af honum Hanna Bach fyrir 5 árum á alveg gjafaprís!!
Virkar eins og nýtt og hvers vegna ætti ég að fara að leggja því og kaupa mér einhver fokdýrann DVD-spilara? Einmitt...hélt ekki...!!
Á ekki einhver alla FRIENDS þættina á VHS?
...mig langar alveg að horfa á þá! 
Jæja...segja þetta gott í bili...?
jú..ætla að leggja mig svo ég vaki í alla nótt... 
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
30.1.2008 | 22:30
Lífið...
...við skellum þessu í myndablogg aftur... 
Afi Skafi Happaþrenna átti afmæli í Desember og við mættum alveg eldhress...skelltum okkur líka öll saman á Dansiball með Geirmundi á Kringlukránni...þangað ætla ég aldrei aftur!!
Hér eru myndir af Jóni Erni, Írisi með gleraugun hans afa, mömmu, Andrési og pabba, Afa og Svandísi, Ester, Geirmundi og Svandísi, Stebbu og Afa að tjútta! 
Á aðfangadag mættu jólin og ég, Mamma, Pabbi og Jón Örn fórum til ömmu Stebbu og afa Nonna að halda upp á það!
Var alveg yndislegt...allavega borðaði ég yfir mig og fékk fullt af æðislegum gjöfum...Takk fyrir mig!! 
Svo fór ég í klippingu...þetta er myndin af hárinu á mér áður en það gerðist... 
Áramótin gengu svo í garð og allir voru heima...víhíhí....!!
Hér eru: hópmynd af Jóni Erni, mér, Gummó og Hörpu, myndir af ömmu Stebbu og afa Nonna, Hlyn og Gummó, flugeldi, Tótu og Guðnýju
Nýársveislan árlega var svo haldin!
Diljá er upprennandi tómatsósukjaftur eins og frændi hennar, við vorum látin stilla okkur upp í fjölskyldumyndatöku, Jón Gústi, Hildur og Agnes voru meðal gesta...
Litla fjölskyldan okkar hefur dundað sér við ýmislegt síðan við komum suður...eins og að borða ávexti í súkkulaði, vera á náttfötunum, búa til kókdósapýramída, hanga í rúmunum í tölvu, eignast börn, fara á skauta og reyna að rota litlar frænkur sem detta í áhorfendapöllunum en ekki á svellinu... 
Komið nóg í bili...sennilega alveg hellingur!
Njótið lífsins...já, og ég ætla til Hólmavíkur um helgina og njóta bolludagsins þar...namminamm... 
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
27.12.2007 | 16:07
Allt að ske...
Hvers vegna er ég farin að sucka í þessu bloggi...afþví að það sem ég geri þegar ég fer í tölvu er að hanga á Facebook! 
Ætla að setja bara nokkrar myndir...svona myndablogg...er búin að gera alveg geðveikt mikið síðan ég bloggaði seinast, en ég nenni bara ekki að ræða það frekar! 
Það sprakk sem sagt pera á salernisaðstöðunni heima hjá okkur og við tendruðum ljós þar með öllum jólaseríunum okkar...komin pera núna!
Svo bjó ég til pakkakartöflumús sem varð ógeðslega hvít...alveg eins og skyr...fallegt! 
Svo fór ég á gleðisamkomu með bakaríinu...allir voru rosa hressir, Guðdís var allt kvöldið með getnaðarsvipinn og Magni stóð sig eins og hetja!!! 
Ég skellti mér svo til Danmerkur með Hönnu Siggu!
Kaupti fyrir hana Kempepulsu, bjuggum hjá Gummó og Hlyn, Hanna Sigga var alltaf með lokuð augun og kelaði við danska jólasveininn, fórum á skauta, Hanna Sigga lagði sig, skreyttum jólatré og heimsóttum svo Svandísi og Olla.
...þetta var yndisleg ferð!
Skelltum okkur svo á jólahlaðborð í Perlunni og ég tók Jón Örn og Karen með mér í gleðina! 
Jebb...héldum líka upp á litlu jólin á heimilinu i Reykjavík og allir voru rosalega huggulegir til fara! 
Þetta er orðið svakalegt blogg...geri meira seinna! 
Gleðileg Jól...svona by the way! 
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
14.11.2007 | 23:18
Atvök...
Góða kveldið...!
Í vinnunni í dag lenti ég í smá vandræðalega fyndnum atvikum sem voru tvö atvik!
Atvik 1: Einhverra hluta vegna ákvað einhver að kveikja ekki á ísvélinni aftur eftir að hún bætti ís í vélina! Svo kom maður og vildi ís úr vél með heitri súkkulaðisósu (súkkulaðisósan kemur ekki málinu við)
...jebb, og ég alveg HELSVÖL eins og alltaf
reif í gikkinn á ísvélinni og setti allt í gang og auðvitað sprengdi vélin svona líter af ís í einu skot út úr sér og auðvitað komst ekki allur sá ís fyrir í rosalega lítilli skál..svo buxurnar mínar urðu rosalega flott hvítdoppóttar og sneri mér við og maðurinn sagði: "kannski ekki alveg í boði?" 
Atvik 2: Ég var eitthvað að spjalla við útlenska vinkonu mína sem er að vinna með mér...og er að ræða um sambýlinga mína...(eða börnin, eða systkinin, eða vitleysingana..sem ég bý með) !
Svo segir mín...:"yes, they are both in Menntaskólinn in Kópavogur!" og brosi mínu blíðasta! Vinkonana segir þá: "really" og ég alveg:"yes"!
Þá segir hún rosalega furðuleg á svip: "in the mentalschool????!!!" og ég lét næstum lífið á svipstundu!! 
Ég er að tapa mér í óþoli yfir ákveðnum óþolandi fæðingauppeldisbarnakrakkaþætti sem heitir Fyrstu helv...skrefin...ég bara hata að á hverju kvöldi þegar maður er að reyna að njóta þess að horfa aðeins á sjónvarpið byrjar þetta helv....
...ég get þetta barasta ekki lengur!!
Um daginn var ég að leggja fjárhæð inn á reikning vinkonu minnar og man nú ekki eftir því að hafa skrifað skýringu á greiðsluna...svo var ég eitthvað að rannsaka lífið nánar...og sá að skýringin á greiðslunni var "BARNAGÆSLA"!!
eigi veit ég svo gjörla hvaðan það kom...en finnst það frekar fyndin skýring...tíhíhí!! 
Skrapp í örlítið afmælis hjá Hörpu um daginn...var reyndar að vinna allann afmælisdaginn og missti þar af leiðandi af miklu gamani...! Kom svo um kveldið og fékk að háka í mig afgangnum af kvöldmatnum og náði að fíflast með Diljá eins og okkur gengur svo vel að gera saman!
Ég hvatti Diljá til að fara í kollhnís...jújú...svo segir barnið Árný líka, ég reyni að afsaka mig eins og ég get út úr því, en hún ætlar alls ekki að gefa sig...rífur í buxurnar og reynir að draga mig niður og segir að ég eigi að fara í kollhnís!!
Ég slæst á móti en er skyndilega komin á hnén og barnið farið að ýta á afturendann á mér eins og ég ætli í alvöru að fara í kollhnís! Kemst svo reyndar upp með það fara ekki í kollhnís, en enda með að þurfa að vera með barn á bakinu á hestbaki í staðinn!! 
Ætla að éta smá pizzu fyrir svefninn...góða nótt...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.11.2007 | 19:29
50 cent....tíhí...
Hmm...ég er ekki í blog stuði...en ég var að velta einu fyrir mér! Efast kannski um að margir séu sammála mér...en er 50 cent ekki huggulegur í jakkafötum og í þessu myndbandi!! 
anyhow...jebbs...heyrumst í framtíðinni...endilega segið mér hvað ykkur finnst!! hahahaha..... 
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.10.2007 | 23:05
Útisundlaug...
Ég er með sjónvarp...og ég horfði á leiðinlegustu mynd allra tíma í því í gær!! ...það var alveg geðveikt!
...stundum tapa ég mér í hræðilegum myndum...get ekki hætt að horfa og bara held áfram að horfa á þær...afþví að þær eru hræðilegar!!
furðulegt ekki satt!
Fór í leiðangur með Söru og Karen í verslunarmiðstöðvar...ágætt alveg...fórum inn í eina búð...reyndar margar! EN í einni fórum við að skoða kjóla og ég spurði um einn kjól...en konan var ekki alveg tilbúin að yfirgefa mig án kjóls..þannig að ég endaði uppstríluð í síðkjól með hálsmen dauðanns og armbönd á hverri hendi...pínu fyndið!! ...endaði með að kaupa...EKKERT...svoldið spes eitthvað!
Röltum svo í allar búðirnar og ég kaupti mér belti...á vonandi eftir að nota það eitthvað...mér finnst það alveg fínt sko! 
Vinna alla helgina...var samt með bestu stelpurnar mínar í vinnunni með mér...!!
Mikið að gera en gekk alveg eins og í sögu útaf því að við erum svo frábærar!! 
Um daginn þegar ég kom heim steig ég næstum ofan í útisundlaugina okkar sem var staðsett BEINT FYRIR UTAN DYRNAR...voru nefnilega fullt af laufblöðum yfir niðurfallinu...en stelpan reddaði þessu og skellti hendinni í pollinn og þreyfaði mig áfram þar til allt var í gúddí! 
Jæja...ætla að hanga aðeins lengur...og háka í mig smá pizzu!! 
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.10.2007 | 00:43
Rúlluskór...
Hey...rúlluskór!? Jahh...mér finnst þeir eiginlega vera svoldið svindl...í barnæsku minn þurfti maður að vera í almennilegum ullarsokkum til að slide-a!
...ég fór líka að velta því fyrir mér um daginn...það var nefnilega gaur í svoleiðis skóm að versla sér í "ríkisbúðinni"...sem fékk mig til að hugsa hversu gamalt fólk er í svona rúlluskóm?!
Ég held ég sé búin að ganga svaðalegann berserksgang á Facebook í dag...er eiginlega ekkert búin að gera nema hanga á facebook í dag...það er svakalegt...SVAKALEGT! 
Sara á afmæli í dag...hún er orðin jafn gömul og ég!!
Til hamingju með afmælið elskan...velkomin í ellina!! 
Ætla að senda út formlega afsökunarbeiðni til þín Tóta mín...!! Ég mundi aldrei yfirgefa þig...aldrei endanlega...ég kom líka aftur!!!
Fyrirgefðu...ég elska þig!! 
Tíhí...ég rétt get ímyndað mér hvað ykkur á eftir að finnast yndislegt að sjá myndirnar af ykkur hérna út um allt!!! 
Ég er ennþá húkkt á Same Game...ég þarfnast lækningar!! HJÁLP!!! 
Jæja...þarf eiginlega að fara að sofa til að mæta í vinnuna á morgun...púff!!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.10.2007 | 20:46
Same Game...
Ég er svo föst í Same Game að það er að verða hættulegt...var að velta fyrir mér hvort maður gæti farið einhvert í meðferð útaf þessu?! ...veit einhver eitthvað um það?!
Endilega ýtið á þetta og prófið...þetta er besti leikur veraldar!!
Um daginn vaknaði ég...og það er eins og ég hafi reynt að éta kinnina á mér í svefni...svakalegasta munnangur veraldar!
Held það hafi verið eftir drauminn þar sem það kom glæpamaður þar sem ég var og hann ætlaði að skjóta fólk, en það var ég sem þurfti að skjóta hann fyrst, það tókst! En svo komu menn sem voru félagar mannsins og þeir ætluðu að drepa mig afþví að ég drap félaga þeirra...þá var ég allt í einu í Víkurtúni 17 sem var í rauninni ekki þar...og þeir voru með uppdrátt af húsinu og vissu bara um 2 útgönguleiðir og ég vissi um þriðju leiðina og flúði þannig frá þeim! Svo var ég allt í einu komin á einhverja samkomu þar sem fólk var að flykkjast saman og vildu verja mig...og svo var allt í einu söngvakeppni, og ég var að keppa við fjóra aðra og þetta var svona útsláttakeppni og tveir efstu áttu að komast áfram...og ég og annar gaur fengum að halda áfram..!!
...og já, ég held það hafi verið sú nótt þegar ég vaknaði eins og ég hafi reynt að éta á mér kinnina...frekar vont! 
Eldaði fiskbúðing áðan...hehe...mikið var langt síðan ég hef borðað fiskbúðing!
Þið vitið...svona fiskbúðing:
Geðveikt góð mynd...tíhí...!! 
Fór á Superbad myndina um daginn og hló alveg helling!! ...sérstaklega þegar gaurinn var að tala um manna-cameltoe...það er ekkert mikið fyndnara en það!!
Snilldar mynd alveg..!
Ég er samt að velta einu fyrir mér...ef maður situr aftast í bíó og hlær..heyra þá allir í manni og maður ekki í neinum sjálfur...? og ef maður situr fremst heyrir maður þá í öllum fyrir aftan mann...? ...eða hlæ ég svo geðveikt hátt að enginn heyrir neitt annað en það...eða mér finnst oft eins og ég sé ALEIN að hlæja í bíó?! 
Einn ónefndur bróðir minn er ógeðslega bitur yfir því að bíllinn minn er betri en hans í augnablikinu...en ég nefni engin nöfn og ætla ekkert að tala meira um það...en MINN BÍLL ER einfaldlega BETRI!!
FYRIRGEFÐU að ég talaði um þetta ÓNEFNDUR BRÓÐIR...ÉG ELSKA ÞIG SAMT MIKLU MEIRA EN BÍLINN MINN!! 
Ég er alveg búin að plana 6 daga í framtíðinni, næstu 2 mánuði ekki svona dag eftir dag, svona fyrir utan vinnu...og mér finnst ég alveg hrikalega bundin...finnst alveg eins og ég eigi eftir að gleyma því sem ég er búin að lofa sjálfri mér og öðrum að gera...reyndar eru þetta alveg spennandi dagar og plön...þannig að þetta er í góðu!!
...bara svo átakanlegt að vinna framtíðarplön...!
...eða eitthvað svoleiðis...!
Var að spá og ég er næstum hrædd um að sjá ekki fram á að fara á Hólmavík fyrr en um jólin...en það er aldrei að vita hvort maður eigi eina helgi fyrir það til að skreppa í ferðalag...vonandi!! 
ó...jæja...fer að vinna næstu 2 daga og er búin að plana að börnin borði bara brauð með súkkulaði og kókópuffs báða dagana!! Ég er draumaforeldri...hahaha....
...en börnin mín eru líka svo tággrönn að maður þarf nú að leyfa þeim að lifa lífinu aðeins!! 
Æðisleg mynd af Johnny Boy í kremju í skottinu á bílnum þegar við fórum til Danmerkur í sumar...tíhí...yndislegt!!
Gangi ykkur vel í lífum ykkar þar til næst...og reyndar eftir það líka...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
13.10.2007 | 00:22
Fiðrildi...
Svona brún og ljót fiðrildi fara geðveikt í taugarnar á mér...það mætti nefnilega halda að einhver sé með ljótufiðrildabú á heimili mínu, ég held það sé Agnes...hún var allavega búin að skýra helminginn af fiðrildunum um daginn!!
...mér finnst samt svona teiknimyndafiðrildi geðveikt flott...svona fjólublá, græn, blá og allskonar!!
...svo fór ég til London einu sinni í dýragarð og það var hægt að labba í gegnum svona fiðrildabú með allskonar flottum fiðrildum..en ég sneri við um leið af því að það væri hræðilegt ef það mundi eitt þeirra ákveða að setjast á mig! Ég held þess vegna að ég sé smá hrædd við venjuleg fiðrildi en elski teiknimyndafiðrildi!! 
Þetta er tildæmis vont fiðrildi: 
oj....en þetta hérna er gott fiðrildi: 
....ég var í svo töluðum orðum að lenda í rosalegri lífsreynslu...það kom eitt fiðrildi og ætlaði að borða mig...og ég varð að kremja það með skó...!!
...og ég henti næstum því tölvunni í gólfið, en það hefði alveg örugglega bjargað mér ef fiðrildið hefði borðað mig!! Í gamla daga var samt bara eftir glimmer þegar maður drap fiðrildi...núna kom smá gums á vegginn held ég...ojbarasta!!
Rúntaði aðeins með Karen og Söru áðan...! Mikið rosalega er mig farið að hlakka til afmælisins hennar Söru á næstu helgi...ég ætla að mæta fyrst!!
...og við ætlum að fara á BALL!!
Ég er búin að panta mér far til útlands...eða ég er búin að panta för fyrir mig og Hönnu Siggu...við ætlum nefnilega að fara til Odense í heimsókn til Gummó og njóta lífsins!!
...góð mynd hérna af mér og Gummó að njóta lífsins...veit ekki alveg hvort við Hanna Sigga eigum eftir að liggja svona í Kongens Have í desember!?
Ég var by the way svona hvít afþví að mér fannst miklu betra að liggja í skugganum en í sólinni...miklu þægilegra verð ég að segja...þá veður manni ekki jafn heitt!!
Ég held ég verði að fara og hanga aðeins í Same Game áður en ég fer að sofa....sjáumst!! 
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Bloggvinir
Tónlistarspilari
Eldri færslur
- Júlí 2008
- Maí 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Apríl 2006
- Mars 2006
- Febrúar 2006
- Janúar 2006
- Desember 2005
- Nóvember 2005
- Október 2005
Fólk
Fjölskyldan
Bloggarar
Tenglar
Spennandi síður
- Dalum Uddannelses Center
- Odense
- Hamingjudagar á Hólmavík
- Grunnskólinn á Hólmavík
- Galdrasafnið
- Ferðamálaskólinn í Kópavogi
- Menntaskólinn í Kópavogi
- Hússtjórnarskólinn á Hallormsstað
- Háskólinn í Reykjavík
- Háskóli Íslands
- Bakarameistarinn
- Strandir
- Lögregluskóli Íslands
- Flugskóli Íslands
Allskonar myndir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 29100
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

gudmundina











